Bóka Sal

Svona skráir þú salinn þinn

Frá skráningu að fyrstu bókun. Leigan fer beint til þín og Bóka Sal tekur enga þóknun af henni.

  1. Þú

    Aðgangur

    Þú skráir þig og staðfestir netfangið.

  2. Þú

    Skráning salarins

    Þú setur inn myndir, verð, lýsingu og opnunartíma, um 15 mínútur. Salurinn vistast sem drög sem birtast ekki á vefnum fyrr en við höfum farið yfir hann.

  3. Þú

    Yfirferð

    Þú sendir hann með einum hnappi þegar hann er kominn með mynd, verð og grunnupplýsingar.

  4. Bóka Sal

    Birting

    Við förum yfir skráninguna og þú færð póst þegar hún er komin í loftið, eða athugasemd ef eitthvað þarf að laga.

  5. Þú

    Fyrirspurnir

    Fyrirspurnir gesta berast á Mínar síður og í tölvupósti nema þú hafir slökkt á honum. Þú samþykkir eða hafnar beint úr póstinum, án innskráningar, eða sendir tilboð. Við samþykkið lokar dagatalið deginum.

  6. Þú

    Greiðsla og staðfesting

    Skráðu reikningsnúmer og kennitölu í Stillingum, þá fylgja þau hverju samþykki: gesturinn greiðir þér beint og bókunin er staðfest þegar þú merkir greiðsluna komna. Án þeirra er bókunin staðfest við samþykki og þið semjið beint um greiðsluna.

Svona skráir þú salinn þinn · Bóka Sal