Ráð fyrir eigendur
Litlu atriðin skilja á milli skráningar sem fær fyrirspurnir og skráningar sem er flett fram hjá. Hér eru sex ráð sem taka stutta stund en skila sér.
- 1
Byrjaðu á bestu myndinni
Fyrsta myndin er forsíðumyndin og birtist í leitinni. Björt mynd á langveginn af salnum sjálfum kemur best út. Raðaðu myndunum þannig að þær segi söguna: salurinn, aðstaðan, smáatriðin.
- 2
Hafðu verðin skýr
Settu inn verð með vsk. fyrir þá kosti sem þú býður: tímagjald, dagsgjald og helgarverð ef við á. Viðskiptavinir bera saman sali og skýr verð skila fleiri fyrirspurnum.
- 3
Lýstu salnum eins og þú sért að sýna hann
Segðu frá stemningunni og aðstöðunni: borðum og stólum, hljóðkerfi, aðgengi og bílastæðum. Góð lýsing svarar helstu spurningum fyrir fram.
- 4
Svaraðu fyrirspurnum fljótt
Margir viðskiptavinir spyrja fleiri en einn sal og sá sem svarar fyrst er oft valinn. Svar samdægurs, þótt það sé stutt, skilar sér í fleiri bókunum.
- 5
Haltu dagatalinu réttu
Lokaðu dögum sem eru bókaðir annars staðar frá. Rétt dagatal kemur í veg fyrir árekstra og fyrirspurnir sem þú þyrftir annars að hafna.
- 6
Biddu ánægða viðskiptavini um umsögn
Umsagnir byggja upp traust og hjálpa næsta viðskiptavini að velja. Stutt skilaboð eftir vel heppnaða veislu duga oftast.