Fara í efnið
Bóka Sal

Stjórnaðu útleigunni.Fleiri bókanir, minni umsýsla.

Engar tvíbókanir og betri nýting. Allar fyrirspurnir á einum stað og dagatal sem uppfærir sig sjálft, svo sami tíminn er aldrei leigður út tvisvar.

Hannað fyrir eigandann

Eitt innhólf

Allar fyrirspurnir í einum lista. Samþykktu eða hafnaðu með athugasemd. Viðskiptavinurinn fær faglegan tölvupóst samstundis, með greiðsluupplýsingunum þínum þegar þú samþykkir, eða með boðum um að reikningur komi frá þér.

Dagatal sem sér um sig sjálft

Samþykktar bókanir loka dagatalinu sjálfkrafa, allt að fimm ár fram í tímann eftir þinni stillingu. Lokaðu dögum vegna viðhalds eða einkanota með tveimur smellum.

Þú ræður verðinu

Tímagjald, hálfur dagur, heill dagur, helgarálag, þrifagjald, lágmarkstími, fyrirvari. Þínar reglur og þeim er framfylgt sjálfkrafa.

Samstillist við kerfin þín

Samþykktar bókanir birtast sjálfkrafa í Google, Outlook eða Apple dagatalinu þínu, og það sem er upptekið þar lokar deginum hér, svo ekkert er tvíbókað. Með Payday-tengingu verður reikningurinn til þegar þú samþykkir bókun og hún merkist greidd þegar hann er greiddur. Þitt eigið bókunarkerfi getur líka fengið að vita af hverri bókun.

Viðskiptavinir á einum stað

Hver bókaði, hversu oft og hvað vantaði: veitingar, þjóna, hljóðkerfi. Auðveldar eftirfylgni og að fá hópinn aftur.

Hvað kostar þetta?

Þrjár einfaldar áskriftarleiðir, innheimtar með reikningi mánaðarlega. Engin binding. Þú semur áfram um leiguverð og greiðslu beint við viðskiptavininn; leigan fer aldrei í gegnum Bóka Sal.

ÁskriftarleiðinTeiti

Fyrir einstaklinga og félagasamtök

0 kr.
alltaf ókeypis
  • 1 salur
  • Allt að 3 myndir
  • Einn notandi
  • Fyrirspurnir í tölvupósti
  • Dagatal á síðunni
Vinsælast

ÁskriftarleiðinVeisla

Fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki

5.900 kr.
á mánuði á sal
  • Allt sem fylgir áskriftarleiðinni Teiti
  • Eins margir salir og þú vilt á 5.900 kr. fyrir hvern sal á mánuði
  • Allt að 30 myndir og myndband á hvern sal
  • Samþætting við önnur dagatöl: Google, Outlook og Apple
  • Payday-tenging: reikningurinn verður til þegar þú samþykkir bókun
  • Viðskiptavinayfirlit
  • Tölfræði: skoðanir á dag og topp 10 listi
  • 3 notendur: þú og 2 samstarfsmenn. Þarftu fleiri? Hver aukanotandi kostar 1.500 kr. á mánuði
  • Forgangur í leitarniðurstöðum

ÁskriftarleiðinHátíð

Fyrir hótel og stærri rekstur

14.900 kr.
á mánuði · 10 salir og 10 notendur
  • Allt sem fylgir áskriftarleiðinni Veisla
  • 10 salir og 10 notendur: þú og 9 samstarfsmenn
  • Þarftu fleiri? Hver aukaeining kostar 1.500 kr. á mánuði og gefur einn sal og einn notanda til viðbótar
  • Payday og dagatölin tengd fyrir alla salina
  • Samþætting við ykkar eigið bókunarkerfi ef við á, við aðstoðum við tenginguna
  • Afsláttarkóðar fyrir þína viðskiptavini
  • Hæsti forgangur í leitarniðurstöðum
  • Forgangsþjónusta: erindin þín fara fremst í röðina og þú færð svar samdægurs á virkum dögum

Öll verð eru með virðisaukaskatti. Rukkað eftir á fyrir hvern mánuð og reiknað eftir dögum, svo þú greiðir aðeins fyrir dagana sem salirnir voru í loftinu. Engin binding.

Komdu salnum í loftið

Skrá sal

Ráð fyrir eigendur

  1. Smelltu á „Skrá sal“ og aðgangurinn stofnast í leiðinni
  2. Lýstu salnum og settu inn myndir og verð
  3. Við förum yfir skráninguna og þú ert í loftinu