Bóka Sal

Skilmálar

Síðast uppfært 17. ágúst 2026

Um Bóka Sal

Bóka Sal er skráningar- og fyrirspurnaþjónusta. Við erum ekki aðili að leigusamningi milli leigjanda og eiganda salar, við hvorki eigum né rekum þá sali sem skráðir eru, og við tökum ekki við greiðslum fyrir leigu. Leigugreiðslur fara ávallt beint á milli leigjanda og eiganda og Bóka Sal tekur enga þóknun af þeim. Eigendur sala greiða áskrift samkvæmt verðskrá, sjá kaflann Áskrift; ein áskriftanna er ókeypis og þjónustan er ókeypis fyrir leigjendur.

Áskrift

Skráning salar er háð áskrift eiganda. Í boði eru þrjár leiðir: áskriftarleiðin Teiti, sem er ókeypis, áskriftarleiðin Veisla, sem kostar 5.900 kr. á mánuði fyrir hvern skráðan sal, og áskriftarleiðin Hátíð, sem kostar 14.900 kr. á mánuði. Verð eru tilgreind í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt. Þjónustan er ókeypis fyrir leigjendur og leigugreiðslur fara ávallt beint á milli leigjanda og eiganda án milligöngu Bóka Sals.

Greiðsluskilmálar

Áskriftargjald er innheimt mánaðarlega með reikningi. Gjalddagi er útgáfudagur reiknings og eindagi 14 dögum síðar. Sé reikningur ógreiddur á eindaga getum við sent áminningu, og standi vanskil áfram er okkur heimilt að taka skráningar eigandans úr birtingu þar til skuldin er greidd. Um dráttarvexti fer samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

Kortagreiðslur og endurgreiðslur

Sem stendur er áskrift eingöngu innheimt með reikningi. Bjóðist greiðsla með greiðslukorti fer færslan um örugga greiðslugátt vottaðs færsluhirðis. Kortanúmer eru aldrei geymd á vefþjónum Bóka Sals. Allar færslur eru í íslenskum krónum (ISK). Áskrift virkjast um leið og gengið er frá kaupum og endurnýjast mánaðarlega; henni má segja upp hvenær sem er eins og lýst er í kaflanum Uppsögn áskriftar, og fjárhæð sem innheimt er fyrir mistök er endurgreidd með sama greiðslumáta og notaður var. Leigugreiðslur fara aldrei í gegnum Bóka Sal.

Verðbreytingar

Við getum breytt verði áskrifta. Verðbreyting er tilkynnt eiganda með tölvupósti með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara og tekur gildi frá og með næsta reikningstímabili eftir að fresturinn er liðinn. Uni eigandi ekki breytingunni getur hann sagt áskriftinni upp áður en hún tekur gildi.

Uppsögn áskriftar

Áskrift er án binditíma og eigandi getur sagt henni upp hvenær sem er. Uppsögn tekur gildi við lok yfirstandandi reikningstímabils og gjöld sem þegar hafa verið greidd endurgreiðast ekki. Við uppsögn færist skráning salarins í áskriftarleiðina Teiti eða hún er tekin úr birtingu ef eigandi óskar þess.

Bókanir

Beiðni sem send er í gegnum síðuna er fyrirspurn, ekki staðfest bókun. Samningur kemst fyrst á þegar eigandi salarins samþykkir hana. Afbókanir, tryggingar, tjón og aðrir skilmálar eru samkomulagsatriði milli leigjanda og eiganda.

Skráning sala

Eigendur bera ábyrgð á að upplýsingar séu réttar: stærð, gestafjöldi, verð, lausir tímar og tilskilin leyfi, þar með talið vínveitingaleyfi ef við á. Við förum yfir skráningar áður en þær birtast en skoðum ekki salina sjálf. Við getum fjarlægt skráningu sem er röng, ólögmæt eða villandi.

Verð

Verð sem birtast koma frá eigendum og eru til viðmiðunar. Áætlað verð þegar fyrirspurn er send er reiknað út frá birtri verðskrá; eigandi staðfestir endanlega fjárhæð.

Auglýsingar

Auglýsingar á síðunni eru merktar sem slíkar. Við berum ekki ábyrgð á vöru eða þjónustu auglýsenda.

Ábyrgð

Þjónustan er veitt eins og hún er hverju sinni. Við berum ekki ábyrgð á tjóni vegna viðburðar sem fellur niður, rangrar skráningar eða eiganda sem stendur ekki við bókun.

Rekstraraðili

Bóka Sal er rekið af eTronica ehf., kt. 411214-1330, Þorrasölum 1-3, 201 Kópavogi, sími 768 3300. Spurningar um skilmálana má senda á etronica@etronica.is eða hallo@bokasal.is. Um skilmálana gilda íslensk lög.

Skilmálar · Bóka Sal