Persónuvernd
Síðast uppfært 19. október 2026
Ábyrgðaraðili
Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga á bokasal.is er eTronica ehf., kt. 411214-1330, Þorrasölum 1-3, 201 Kópavogi, sími 768 3300, netfang etronica@etronica.is. Vinnslan samræmist lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerð ESB (GDPR).
Hvað við geymum
Vegna fyrirspurnar um sal: nafn, netfang, símanúmer, fyrirtækjanafn og kennitölu ef þú gefur þau upp, fjölda gesta og það sem þú skrifar í skilaboðin. Vegna aðgangs: nafn, netfang, símanúmer og lykilorð sem er eingöngu geymt sem tætigildi (e. hash). Vegna skráningar salar: þær upplýsingar sem eigandi slær inn, þar með talið kennitölu fyrirtækis ef hún er gefin upp. Vegna áskriftar eiganda: valin áskrift, reikningsupplýsingar og greiðslustaða útgefinna reikninga.
Tilgangur og heimild vinnslu
Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að reka þjónustuna: koma fyrirspurnum til skila, halda utan um aðganga og áskriftir og gefa út reikninga. Vinnslan byggist á framkvæmd samnings við þig og lögmætum hagsmunum af rekstri síðunnar. Upplýsingarnar eru hvorki seldar né notaðar í markaðssetningu þriðja aðila.
Hverjir sjá upplýsingarnar
Fyrirspurn um sal fer til eiganda viðkomandi salar og samstarfsfólks sem hann hefur veitt aðgang, og engra annarra utan salarins. Ef eigandinn gefur út reikninga í Payday fara nafn þitt, samskiptaupplýsingar og kennitala (sem er þá skylda) í hans eigið Payday svo reikningurinn verði til. Staðfest bókun birtist með nafni þínu og fjölda gesta í dagatali eigandans ef hann er áskrifandi að því, og í hans eigin bókunarkerfi ef hann hefur tengt það. Ef þú óskar eftir veitingum, starfsfólki eða annarri þjónustu fara nafn þitt, netfang, sími og dagsetning til okkar og til þjónustuaðilans sem þú velur eða við sendum fyrirspurnina á; skilaboð þín til eigandans fylgja ekki.
Hýsing og vinnsluaðilar
Síðan er hýst hjá Vercel í Frankfurt og gögn geymd í Neon-gagnagrunni innan Evrópska efnahagssvæðisins. Tölvupóstur er sendur í gegnum Resend, reikningar gefnir út í Payday og okkar eigið pósthólf, hallo@bokasal.is, er hjá Microsoft 365. Myndir og skrár eru geymdar í skráageymslu Vercel. Þessir aðilar vinna gögn í okkar umboði á grundvelli vinnslusamninga. Tveir aðrir fá gögn sem sjálfstæðir aðilar: ef þú skráir þig inn með Google lætur Google okkur vita nafn þitt og netfang, og kortið á síðunni er teiknað úr OpenStreetMap, en netþjónar þess fá IP-tölu þína þegar kortið hleðst og eru spurðir um heimilisfang salar til að setja hann á kortið. Sumir þeirra eru í Bandaríkjunum; gögn sem fara út fyrir Evrópska efnahagssvæðið eru flutt á grundvelli staðlaðra samningsákvæða ESB eða rammasamnings ESB og Bandaríkjanna um gagnavernd (Data Privacy Framework).
Tengiliðir fyrirtækja
Til að kynna þjónustuna fyrir sölum og þjónustuaðilum geymum við opinberar samskiptaupplýsingar fyrirtækja (nafn, netfang, síma, vefsíðu og tengilið sem þar er nefndur), fengnar af skráningarvefjum og vefsíðum þeirra sjálfra, ásamt athugasemdum um samskipti okkar við þau, þar á meðal bréf til og frá hallo@bokasal.is. Vinnslan byggist á lögmætum hagsmunum okkar af því að kynna þjónustuna. Í hverju bréfi sem við sendum er hlekkur sem stöðvar frekari bréf, og einnig má skrifa á hallo@bokasal.is. Sex mánuðum eftir að tengiliður er fjarlægður af listum okkar er tengilið, netfangi, síma, athugasemdum og bréfaskiptum eytt; nafn fyrirtækisins og vefsíða eru geymd svo það sé ekki flutt inn aftur. Netfang sem hefur beðið um að fá ekki fleiri bréf er geymt á sérstökum lista, því þannig er orðið við þeirri ósk.
Vafrakökur og tölfræði
Síðan notar aðeins nauðsynlegar vafrakökur: innskráningar- og öryggiskökur fyrir notendur með aðgang og skammlífa köku sem ver innskráningu með Google. Engar markaðs- eða rakningarkökur eru notaðar. Heimsóknartölfræði er safnað með Vercel Web Analytics og með heimsóknateljara eTronica (telja.etron.is). Hvorugt setur vafrakökur eða auðkennir einstaka notendur: teljarinn skráir síðuna, vefinn sem vísaði á hana, land, gerð tækis og vafra, IP-tala er ekki geymd og auðkenni gests breytist á hverjum sólarhring. Tölurnar eru aðeins til sem heildartölur. Við teljum líka hve oft hver salasíða er opnuð, sem eina tölu á sal á dag, svo eigandinn sjái hve mikill áhuginn er. Til að telja hverja heimsókn aðeins einu sinni er brenglaður kóði, leiddur af tengingu þinni, geymdur í mesta lagi þrjá daga og honum þá eytt; ekkert annað um þig er geymt með þeirri talningu. Auglýsingar koma úr okkar eigin gagnagrunni og birtingar og smellir eru taldir án persónusniðs. Þar sem engar ónauðsynlegar vafrakökur eru notaðar er ekki þörf á samþykkisborða fyrir vafrakökur.
Varðveisla og réttindi þín
Þremur árum eftir viðburð er netfangi, símanúmeri, fyrirtæki, kennitölu og skilaboðum gestsins eytt af fyrirspurninni; nafn, dagsetning, salur, fjöldi gesta og verð standa eftir í bókhaldi eigandans og af því að nafnið birtist á umsögn ef gesturinn skrifaði hana. Brenglaður kóði leiddur af tengingu þinni, sem er geymdur með fyrirspurn eingöngu til að takmarka hve margar má senda á klukkustund, er fjarlægður daginn eftir. Fyrirspurnir um þjónustu og skilaboð af formum vefsins eru hreinsuð þremur árum eftir að þau bárust. Leitarorð eru geymd í 13 mánuði, netföng á biðlista þar til dagurinn er liðinn og netföng sem skilin eru eftir fyrir leitarvakt í 7 mánuði. Aðgangar og umsagnir eru geymd þar til þeim er eytt, sem þú getur gert á Mínum síðum eða beðið okkur um. Þegar aðgangi er eytt heldur bókun sem er enn fram undan, eða sem reikningur frá salnum er enn opinn fyrir, upplýsingum gestsins svo salurinn nái í gestinn og geti gert upp reikninginn; þá gildir þriggja ára reglan hér að ofan. Reikningar, og daglegar færslur sem okkar eigin reikningar eru gerðir eftir, eru geymd í sjö ár eins og bókhaldslög krefjast. Þú átt rétt á aðgangi að upplýsingum sem við geymum um þig, leiðréttingu þeirra, eyðingu, takmörkun vinnslu og flutningi gagna. Sendu tölvupóst á hallo@bokasal.is til að nýta þessi réttindi. Þú getur einnig beint kvörtun til Persónuverndar, sjá personuvernd.is.