Bóka Sal

Hvernig virkar Bóka Sal

Einn staður til að finna, bera saman og bóka sali um allt Ísland, og einn staður fyrir eigendurna sem reka þá.

Að bóka sal

  1. Finndu salinn

    Leitaðu eftir landshluta, gestafjölda og dagsetningu. Berðu saman myndir, verð og lausa daga.

  2. Sendu fyrirspurn

    Engin skuldbinding. Segðu eigandanum frá viðburðinum og hakaðu við aukaþjónustu eins og veitingar eða tónlist í leiðinni.

  3. Fáðu svar

    Eigandinn svarar þér beint með staðfestingu eða tilboði, svartími hvers salar birtist á síðunni hans og margir svara samdægurs. Sumir salir staðfesta samstundis.

  4. Staðfestu og haltu veisluna

    Við staðfestingu læsist dagurinn í dagatali salarins. Þú greiðir eigandanum beint. Bóka Sal tekur enga þóknun af leigunni.

Finna sal

Að leigja út salinn þinn

  1. Skráðu salinn

    Lýstu salnum, settu inn myndir, verð og reglur. Það tekur um 15 mínútur. Þrjár áskriftir eru í boði og ein þeirra er ókeypis.

  2. Fyrirspurnir í eitt innhólf

    Allar fyrirspurnir lenda á Mínum síðum og í tölvupósti. Samþykktu eða hafnaðu með einum smelli.

  3. Dagatalið sér um sig sjálft

    Staðfestar bókanir loka dögunum sjálfkrafa og dagatalið samstillist við Google eða Outlook.

  4. Þú heldur stjórninni

    Þín verð, þínir skilmálar og leigan beint til þín. Greidd áskrift bætir við sýnileika og verkfærum á borð við dagatalssamstillingu. Engin binding.

Skrá sal

Fyrir þjónustuaðila

Veitingafólk, kokkar, þjónar, skreytingafólk, hljóðmenn og aðrir sem vinna í kringum viðburði geta skráð sig í þjónustuskrá Bóka Sals og birst þeim sem eru að skipuleggja veislu. Skráning er ókeypis, greidd þrep raðast ofar og fyrirspurnir um aukaþjónustu eru áframsendar á greidda aðila.

Skrá mína þjónustu

Algengar spurningar

Hvernig fer greiðslan fram?

Leigan er greidd beint til eiganda salarins samkvæmt samkomulagi ykkar á milli. Bóka Sal tekur ekki við greiðslum fyrir leigu og tekur enga þóknun af henni.

Hvað gerist eftir að ég sendi fyrirspurn?

Eigandinn fær fyrirspurnina samstundis og svarar þér beint með staðfestingu eða tilboði. Svarið berst í tölvupósti. Margir svara samdægurs og sumir salir staðfesta samstundis. Fyrirspurnin er óskuldbindandi.

Hvernig breyti ég fyrirspurn eða hætti við?

Í staðfestingarpóstinum er hlekkur á síðuna þína þar sem þú getur sent eiganda skilaboð eða hætt við fyrirspurnina. Eftir að bókun er staðfest semur þú beint við eigandann um breytingar og afbókun.

Eru verðin með vsk.?

Já, öll verð sem birtast á Bóka Sal eru með virðisaukaskatti. Verðin koma frá eigendum og eru til viðmiðunar. Eigandinn staðfestir endanlega fjárhæð.

Hvað kostar að skrá sal?

Í boði eru þrjár leiðir: áskriftarleiðin Teiti, sem er ókeypis, áskriftarleiðin Veisla á 5.900 kr. á mánuði á sal og áskriftarleiðin Hátíð á 14.900 kr. á mánuði, bæði verð m. vsk. Engin binding og leigan fer aldrei í gegnum Bóka Sal.

Hvernig virka umsagnir?

Eftir staðfesta bókun færðu tölvupóst með hlekk til að skrifa umsögn um salinn. Aðeins þeir sem hafa bókað í gegnum Bóka Sal geta skrifað umsögn og hver umsögn er yfirfarin áður en hún birtist.

Spurningar? Sendu línu á hallo@bokasal.is eða hringdu í 768 3300

Hvernig virkar Bóka Sal · Bóka Sal