Bóka Sal

Svona leigir þú sal

Frá leit að veislu. Leigan fer beint til eigandans og Bóka Sal tekur enga þóknun af henni.

  1. Þú

    Leit að sal

    Þú leitar eftir landshluta, gestafjölda og degi. Enginn aðgangur nauðsynlegur.

  2. Þú

    Fyrirspurn

    Þú velur dag og tíma og segir frá viðburðinum. Óskuldbindandi. Þú færð bókunarnúmer strax og póst með hlekk á bókunarsíðuna þína.

  3. Eigandinn

    Svar eigandans

    Eigandinn samþykkir, hafnar eða sendir tilboð sem þú samþykkir með einum smelli. Við samþykkið er dagurinn tekinn frá. Spurningar fara fram og til baka á bókunarsíðunni.

  4. Þú

    Greiðsla, beint til eigandans

    Svarið ber greiðsluupplýsingar eigandans: reikningsnúmer, og upphæð og kennitölu þar sem þær liggja fyrir. Þú millifærir með bókunarnúmerið sem skýringu og ýtir á „Ég er búin(n) að greiða“. Hafi eigandinn ekki skráð reikningsnúmer semjið þið beint um greiðsluna.

  5. Eigandinn

    Staðfesting

    Þegar greiðslan hefur borist staðfestir eigandinn hana og þú færð staðfestingu í tölvupósti. Sé ekki greitt með millifærslu er bókunin staðfest um leið og eigandinn samþykkir.

  6. Þú

    Veislan

    Eftir viðburðinn færðu boð um að skrifa umsögn um salinn, hafi bókunin verið staðfest.

Svona leigir þú sal · Bóka Sal